Próteinríkar bananamöffins
Það sem þarf (í ca 12 möffins)
3 þroskaðir bananar
2 egg
185 gr grísk jógúrt
75 gr sýróp (hægt að nota sykurlaust)
1 tsk vanilludropar
180 gr hafrar (malaðir í hveiti)
1 scoop vanilluprótein 100% whey (ég nota vanilla icecream frá ON)
2 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
dass af kanil
smá salt
Súkkulaðidropar / chunky skorið súkkulaði (td hægt að nota dökkt, sykurlaust, semi-sweet)
Aðferð:
Hita ofninn í 176 c
Stappa banana & blanda saman í skál við öll “blautu” hráefnin; egg, grísk jógúrt, sýróp & vanilludropar
Búa til “hveiti” úr höfrunum með því að mala þá, td í Nutribullet
Bæta hafrahveitinu út í bananablönduna ásamt lyftidufti, matarsóda, kanil, próteindufti & salti
Bæta súkkulaðidropunum út í deigið
Skipta deiginu upp í muffins form - ætti að gefa 12-14 möffins
Baka í ofni í 15-18 mínútur & njóta!!
Endilega deildu því með mér þegar þú prófar uppskriftir frá mér - ég elska að fá skilaboð og/tagg á instagram @saradavidsd. Njóttu vel & verði þér að góðu xx